Skreytingar
Marianne Westman á sænsku postulíni finnast mér voða skemmtilegar. Hún hóf störf hjá
Rörstrand árið 1950 og starfaði þar í fjöldamörg ár. Nú hefur
Picknick-lína hennar (frá 1956) verið sett aftur í framleiðslu hjá
Almedahls og má nálgast hana
hér. Þess má geta að hún hannaði
Annika-kaffistellið (á neðstu myndinni) sem ég ólst upp með en það var í framleiðslu frá 1972-1981.






