25.2.10

24.2.10

* klukka George Nelson

Vaknaði upp með þá dillu í höfðinu að ég yrði að kaupa mér svarta Asterisk-klukku George Nelson. Svona getur þetta verið, það er enn svolítill 2007-hugsunarháttur eftir í manni - og þökkum fyrir það, annars færi illa fyrir hagkerfinu?

23.2.10

Julius Shulman

Nýlega var gerð heimildarmynd um ljósmyndarann Julius Shulman sem gaman væri að sjá. Shulman sem lést í fyrra er af mörgum talinn merkasti ljósmyndari módernismans þegar kemur að byggingarlist. Inni á heimasíðu myndarinnar má sjá bæði myndir Shulmans og stiklu (áður um Shulman hér).

Veggteppi Kristínar Gunnlaugs

Mig langar að mæla með sýningu Kristínar Gunnlaugs í sal Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu. Ákaflega hressandi! Gott viðtal við listakonuna í Víðsjá hér. Ath. sýningunni lýkur um næstu helgi.

20.2.10

Giglio og Girard

Mark Giglio undir áhrifum Alexander Girard.

Sænsk huggulegheit

Hér kemur enn eitt huggulega, sænska innlitið - að þessu sinni af síðu desire to inspire. Ljósmyndari Kira Brandt og stílisti Katrine Martensen-Larsen. Fleiri myndir hér.

19.2.10

Artek + Ilse Crawford

Í tilefni af 75 ára afmæli Artek voru nokkrir frægir hönnuðir fengnir til að gera sína eigin útgáfu af þekktum stólum fyrirtækisins. Ilse Crawford ríður á vaðið með þessa útgáfu af hægindastólnum-400.

18.2.10

Guð signi heimið

Nú hefur vefverslunin Uma hafið sölu á færeysku kveðjunni "Guð signi heimið" (drottinn blessi heimilið). Endilega látið það berast til þeirra Færeyinga sem þið þekkið :)

17.2.10

Fallegir fætur

Þessa fallegu borðfætur fann ég á síðu Petites Productions.

16.2.10

Afsakið ...

... en ég get nú ekki orða bundist, því þetta er með því grófara sem ég hef séð. Fyrir tilviljun datt ég inn á síðu sem heitir Skapi Íslensk Hönnun og þar má sjá þetta tré sem er semsagt fatastandur. Það þarf varla að taka fram að árið 2003 hönnuðu Katrin Ólína Pétursdóttir og Michael Young fatastandinn Tree sem vakti mikla athygli og gerir enn. Varist eftirlíkingar !

15.2.10

Kalifornía

Litríkt Kaliforníu-heimili úr tímaritinu Dwell.

Bolludagur

Mæli með kökuskrauti ofan á bollurnar - bara svona til tilbreytingar. Mynd Boligliv.

10.2.10

9.2.10

Stephanie Hanes

Ég er alveg heilluð af þessum litum - stílisti Stephanie Hanes.