31.1.11

Smile-bordet

var hannað árið 1957 af Johannes Andersen fyrir CFC Silkeborg. Eitt af mínum uppáhalds sófaborðum.

1. hæð

Mikið svakalega yrði þetta nú smart hér fram á gangi. Geri þetta að tillögu minni þegar stigagangurinn verður tekinn í gegn. Mynd af síðu Lottu Agaton.

30.1.11

Borðspegill

Það allra nýjasta á óskalista frúarinnar er borðspegill eftir sænsku bræðurna Uno og Östen Kristiansson sem framleiddur var af Luxus í Svíþjóð hér á árum áður. Ég á nú ekki afmæli fyrr en í maí þannig að það er nógur tími til stefnu ;)

Spegillinn

mynd úr sænsku innliti - áður hér.

Sófaborðið mitt góða

Decopedia er frábær síða sem gaman er að skoða. Ég komst t.d. að því að Sven Ellekær hannaði fína sófaborðið mitt árið 1961 en framleiðandi var Christian Linnebergs Möbelfabrik. Borðið fann ég fyrir mörgum árum í Góða hirðinum.

24.1.11

Staflanlegir kertastjakar

eru í miklu uppáhaldi hjá mér (kannski af því að ég þarf alltaf að vera að breyta). Hér eru myndir af nokkrum slíkum bæði nýjum og gömlum.

Krítartöfluborð

Krítartöflumálningu má kaupa úti í næstu málningavörubúð og nota á hvað sem er t.d. gamalt sófaborð.

23.1.11

Áhugavert eldhúsborð

Fleiri myndir úr þessu franska eldhúsi hér.

20.1.11

Gamaldags snagar

Ég rakst á svona snaga í dag í Heimahúsinu í Síðumúla. Þeir eru frá Bloomingville og fást í nokkrum lengdum og á ágætisverði. Og svo fást Fjällräven-bakpokarnir í hinni frábæru verslun Geysi á Skólavörðustíg á aðeins hærra verði ;)

19.1.11

Meiri Stokkhólmur

Desire to inspire er oft ansi inspírerandi vefur, ef svo má að orði komast. Hér er fallegt hús rétt fyrir utan Stokkhólm - meira hér.

16.1.11

Til sölu Cycloc-reiðhjólaupphengi - S E L T

Til sölu svart Cycloc-reiðhjólaupphengi. Allt um græjuna hér og hér - olofjakobina@gmail.com

13.1.11

Óska eftir skermi á Panthella-gólflampa

Lumar einhver á gömlum Panthella-skermi niðri í geymslu? Mig vantar einn slíkan - má alveg vera smá sjúskaður.

12.1.11

Gunila Axén

Mynstrið Moln (ský) hannaði sænski textílhönnuðurinn Gunila Axén árið 1966. Ég er sérstaklega hrifin af því með bláum grunni og gæti vel hugsað mér slík rúmföt. Färg & Form er framleiðandi.

Have you met miss jones

Ekki veit ég hvað þetta er, en þetta er fallegt - sjá hér.

9.1.11

Rosie Brown

er skoskur stílisti og eigandi netverslunarinnar Papa Stour. Hér eru nokkrar myndir úr hennar safni og svo meira hér og hér.