Vá, hvað þetta hús myndi fara mér og minni fjölskyldu vel - nóg af tekki, arinn og meira að segja hreindýrið uppi á vegg.
Alveg einstakt hús, hannað árið 1960 af Jóhanni Eyfells.
Fleiri myndir og nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni Kjöreign.
Fyrir tveimur árum síðan fór ég að framleiða tréjólatré sem eru endurgerð af gömlu tré sem ég átti sem barn. Þau hafa vakið mikla hrifningu og því held ég áfram og er nú komin með nokkur í hús.
Til sölu þetta æðislega B&O kasettutæki (eins og það fremra á myndinni, klætt með tekki). Dásamlega fallegt - hannað af Jacob Jensen og var í sölu frá 1975-77. Upplýsingar um tækið hér og hér.
Ég hef lengi hrifist af þessum snögum (hönnun Nanni Holén og framleiðandi Design house Stockholm) og lét loks verða af því að kaupa mér slíka inn á bað. Þeir eru seldir 2 saman í pakka og mig vantaði 3 stk. þannig að núna sit ég uppi með einn hvítan, 45 cm á lengd, sem ég vil gjarnan selja.
olofjakobina@gmail.com.