9.2.10

Amy Butler

Efni Amy Butler eru mörg hver mjög falleg og lífga svo sannarlega upp á skammdegið, en þau fást hér á landi í Storkinum, Kjörgarði. Kíkið endilega á gluggaútstillinguna ef þið eigið leið þar hjá :)

5.2.10

Piet Hein Eek

Þessar fallegu körfur eru nýjar frá Piet Hein Eek.

Meiri bókahillur

Mér finnst alltaf svo óskaplega sjarmerandi þegar bókahillur eru svona í kringum dyraop ... (fleiri bókahillur hér).

2.2.10

Vesterbro

Ansi hreint skemmtilegur litur á þessum eldhússtólum og svo væri ég alveg til í að hlamma mér í þennan hornsófa - innlit af síðunni My Scandinavian Retreat.

29.1.10

Gult rúmteppi

væri nú svolítið frískandi svona í skammdeginu.

28.1.10

Landskrona

Á Veröld Mörtu Maríu rakst ég á myndir af þessu fyrirmyndarheimili í Svíþjóð.

Amber in the sky

heitir þetta sniðuga barnarúm. Hönnuður er Thomas Maitz og framleiðandi Perludi.

26.1.10

Grand Prix

Þessa borðstofu gæti ég alveg hugsað mér að eiga. Gömlu Grand Prix-stólarnir sem Arne Jacobsen hannaði árið 1957 fara einstaklega vel við þetta nútímalega borð. Stólarnir eru í framleiðslu nú einungis með stálfótum en þessir gömlu með viðarfótunum eru nú mikið fallegri.

Little Fashion Gallery

Allskonar fallegt úr Little Fashion Gallery.

21.1.10

Ball Chair

Sjáiði nú hvað ég fann á Barnalandinu, Ball Chair! -ekki eru nú margir slíkir til hér á landi. Vonandi er hér um ósvikinn stól að ræða, en óskað er eftir tilboðum í gripinn. Eero Aarnio hannaði stólinn árið 1966 og framleiðandi er Adelta. Epal selur þessa stóla og mér skilst að í dag myndi slíkur stóll kosta um eina milljón króna ... en meira um hann hér.