1.6.08
Litlir sætir kjólar á vegg
Litlar stelpur eiga flestar svo mikið af fallegum kjólum að það er hálfgerð synd að geyma þá inni í skápum eða niðri í skúffum. Þess vegna fannst mér, á sínum tíma, upplagt að hengja þá upp á vegg og lífga í leiðinni upp á herbergið.
Snagarnir komu úr Rúmfatalagernum, 3 stk., hengdir upp hlið við hlið og hvítu blómin keypt í IKEA, hengd upp með kennaratyggjói.
(Herbergi Ernu Sóleyjar, Stigahlíð 10)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli