Kartio-glösin, frá 1958, eru sennilega með þekktari verkum
Kaj Francks, en þau voru hönnuð til að passa með
Kilta-stellinu sem var forveri
Teema. Glösin eru sívinsæl og mjög gott dæmi um tímalausa hönnun. Þarna um árið hannaði Kaj Franck líka blómavasa í sama stíl en þeir hættu í framleiðslu árið 1961. Iittala hefur nú dustað rykið af þeim og sett á ný í framleiðslu en vasarnir fást í tveimur stærðum og fimm litum.
