Sýnir færslur með efnisorðinu diy. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu diy. Sýna allar færslur

20.11.11

Undurfagrar pappírsstjörnur

Þessar fallegu stjörnur má búa til úr hvaða pappír sem er - leiðbeiningar á síðunni Home by linn.

14.6.11

Design*Sponge diy

Ef þú býrð svo vel að eiga auðan vegg (og ef afi þinn var prentari) þá er þetta ágætis hugmynd - sjá meira hér.

16.2.11

Tekkborð með (gler)hillu

Gömul tekksófaborð með hillu undir eru ákaflega vinsæl og eftirspurn meiri en framboð. Hér höfum við útfærslu sem er ekki svo vitlaus ... svona á meðan þú bíður eftir að rétta borðið rati til þín. Mynd Bolig-magasinet.

11.12.10

8.12.10

Einfaldir jólaóróar

Við Sirrý föndruðum þessar krúttlegu jólalengjur fyrir jólablað Gestgjafans. Þetta er afar einfalt; klippið út úr stífum pappír hjörtu, hringi eða önnur form. Skellið því í saumavélina, saumið með ljósbláum tvinna (eða rauðum?) og hafið smá bil á milli. Ljósmyndari Rakel Ósk Sigurðardóttir.

22.11.10

Eldhúsljós

Sweet Paul er mikill snillingur. Þetta fína ljós gerði hann úr gömlum iðnaðarhrærivélaþeytara og svona fór hann að því.

22.8.10

Heimatilbúnar blómalengjur

Á síðunni Once Wed má læra að búa til falleg blóm úr kreppappír.

23.3.10

DIY páskaskraut

Fyrir páskana í fyrra tók ég mig til og klippti út, úr hvítum stífum pappír, heil ósköp af eggjum sem ég þræddi svo upp á silkiband og hengdi upp í stofunni. Þetta var, eins og sjá má, einstaklega auðvelt og fljótlegt og bara nokkuð sætt ...

4.11.09

Jólagardínurnar í ár

Hugmynd fyrir þá sem eru flinkir með skærin.

25.8.09

D.I.Y.

Hér er uppskrift af ægilega fínum sófa í boði Design*Sponge.

29.10.08

Heimatilbúnar jólagjafir

Nú er um að gera að taka upp saumavélina og hendast í jólagjafaframleiðslu. Hér koma tvær hugmyndir af jólagjöfum fyrir ungabörn.