Sýnir færslur með efnisorðinu tekk. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu tekk. Sýna allar færslur

16.2.11

Tekkborð með (gler)hillu

Gömul tekksófaborð með hillu undir eru ákaflega vinsæl og eftirspurn meiri en framboð. Hér höfum við útfærslu sem er ekki svo vitlaus ... svona á meðan þú bíður eftir að rétta borðið rati til þín. Mynd Bolig-magasinet.

31.1.11

Smile-bordet

var hannað árið 1957 af Johannes Andersen fyrir CFC Silkeborg. Eitt af mínum uppáhalds sófaborðum.

30.1.11

Sófaborðið mitt góða

Decopedia er frábær síða sem gaman er að skoða. Ég komst t.d. að því að Sven Ellekær hannaði fína sófaborðið mitt árið 1961 en framleiðandi var Christian Linnebergs Möbelfabrik. Borðið fann ég fyrir mörgum árum í Góða hirðinum.

1.12.10

Selvogsgrunn 10

Vá, hvað þetta hús myndi fara mér og minni fjölskyldu vel - nóg af tekki, arinn og meira að segja hreindýrið uppi á vegg. Alveg einstakt hús, hannað árið 1960 af Jóhanni Eyfells. Fleiri myndir og nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni Kjöreign.

28.11.10

B&O Beocord 1100 - S E L T

Til sölu þetta æðislega B&O kasettutæki (eins og það fremra á myndinni, klætt með tekki). Dásamlega fallegt - hannað af Jacob Jensen og var í sölu frá 1975-77. Upplýsingar um tækið hér og hér.

26.1.10

Grand Prix

Þessa borðstofu gæti ég alveg hugsað mér að eiga. Gömlu Grand Prix-stólarnir sem Arne Jacobsen hannaði árið 1957 fara einstaklega vel við þetta nútímalega borð. Stólarnir eru í framleiðslu nú einungis með stálfótum en þessir gömlu með viðarfótunum eru nú mikið fallegri.

18.1.10

Konditori Valand

Þetta fallega kaffihús er í Stokkhólmi, en þar hefur engu verið breytt frá opnun þess árið 1954.

3.12.09

Býsna lekkert bakkaborð

Hans Engholm og Svend Aage Willumsen hönnuðu þetta fallega bakkaborð árið 1958 sem prívat jólagjöf, en ári síðar fór það svo í framleiðslu hjá Fritz Hansen. Ég gæti vel hugsað mér það ... í jólagjöf.

Furniture-Love.com

er ein af mínum uppáhalds netverslunum - ekki það að ég kaupi þar nokkurn tíma nokkuð - en þar er margt fallegt.

5.9.09

Tekksófaborð óskast

Ein góð vinkona mín er búin að vera að leita í óratíma að tekksófaborði með hillu. Er kannski einhver sem lumar á slíku og vill gjarnan losna við? Ef svo er, endilega "commentið" á þennan póst eða sendið mér línu á olofjakobina@gmail.com

27.8.09

Óska eftir tekkskrifborði

Nú er ég á höttunum eftir nettu tekkskrifborði (má vera illa farið) til að hafa hér í stofunni. Á einhver slíkt í geymslunni sem hann vill losa sig við? Eitthvað í líkingu við þessi hér fyrir neðan ...

13.4.09

Hans Olsen

Fínu tekkstólarnir með 3 fótunum hér fyrir neðan sýnast mér vera stólar eftir Hans Olsen sem voru hannaðir um 1960 og framleiddir af Frem Röjle. Þeir eru oft fáanlegir í verslunum í Skandinavíu sem selja húsgögn frá þessu tímabili.

26.2.09

Klassik - moderne möbelkunst

Klassik er danskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á notuðum húsgögnum hönnuðum á tímabilinu 1920-1975. Þeir eiga t.d. alltaf gott úrval af Arne Jacobsen stólum og fann ég þessa tekkstóla á síðunni hjá þeim núna.

30.1.09

Tekk náttborð

Þessi fínu tekknáttborð eru nú til sölu á mbl.is - í smáauglýsingunum. Og mér datt í hug að vekja athygli ykkar á því. Tek það fram að ég veit ekki hver er að selja þetta - en þau líta mjög vel út!