Teketillinn, sem mig hefur lengi langað í, beið mín í Góða hirðinum í dag. Ketillinn, GA3 (eins og sá svarti á myndinni) var hannaður árið 1953 af Ullu Procopé fyrir Arabia og eintakið sem ég fann framleitt árið 1969 - er því alsæl með kaupin :)
Ég minntist á Ovale-borðbúnaðinn eftir Bouroullec-bræðurna fyrir nokkrum mánuðum síðan. Nú er hann kominn í sölu í Epal og er alveg jafn fallegur og á myndunum - tilvalinn í brúðargjafir.
Guðbjörg Káradóttir leirkerasmiður og ég höfum hafið samstarf undir heitinu Postulína. Lísa er fyrsta afurð Postulínu, staflanlegir kertastjakar handrenndir úr postulíni. Kertastjakarnir verða kynntir í Epal á HönnunarMars sem hefst núna á fimmtudaginn.
er nýr borðbúnaður sem Ronan og Erwan Bouroullec hönnuðu fyrir Alessi. Ég er mikill aðdáandi bræðranna og því ansi spennt fyrir þessu - kannski maður geti loksins farið að safna stelli!