Sýnir færslur með efnisorðinu sýningar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu sýningar. Sýna allar færslur

28.3.11

Hönnunarmars 2011

Á síðunni Koolandkreativ má sjá heilmikið um Hönnunarmarsinn - hef engu við það að bæta ;)

12.6.10

Sigurður Guðmundsson

Þar sem ég er byrjuð að mæla með ljósmyndasýningum, þá verð ég að mæla með Sigurði Guðmundssyni í i8 - frábær sýning!

Friederike von Rauch

Ég get eindregið mælt með sýningunni Sites með myndum Friederike von Rauch í Hafnarborg. Sýningin stendur aðeins í viku í viðbót eða til 20. júní.

28.4.10

Galerie Kreo

Nú stendur yfir sýning Bouroullec-bræðranna í Galerie Kreo í París, en sýningin stendur til 22. júlí. Fyrir okkur, sem erum því miður ekki á leið til Parísar, þá má kíkja á sýninguna hér.

23.2.10

Veggteppi Kristínar Gunnlaugs

Mig langar að mæla með sýningu Kristínar Gunnlaugs í sal Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu. Ákaflega hressandi! Gott viðtal við listakonuna í Víðsjá hér. Ath. sýningunni lýkur um næstu helgi.

16.5.09

Natura Design Magistra

Í Galerie kreo í París stendur yfir sýning á verkum Hellu Jongerius en hún sýnir þar "dýraborð og gerviblóm". Sýningin stendur til 30. maí.