27.12.08

CITY (2004)

Og þessa kertastjaka. Þeir heita City og eiga að mynda einhverskonar borg.

SoLo (2004)

Sama ár gerði ég líka sófaborð.

Eldhúsborð (2004)

Ég var að taka til í gömlum myndum og rakst þá á þessar af eldhúsborði sem ég gerði árið 2004. Framleiðandi var og er Sólóhúsgögn.

20.12.08

Enn eitt fína jólatréð - sjá Atelier XT.

17.12.08

Jólatré til sölu

Ég lét búa til þessi krúttlegu tréjólatré fyrir jólabasarinn í Neskirkju á dögunum. Þau vöktu mikla lukku og lét ég því gera fleiri og á nú nokkur óseld. Tilvalin í jólagjafir - munu endast um aldur og ævi og svo fer ekkert fyrir þeim í geymslunni.

Jólatréð á vegg

Hér er eitt ótrúlega krúttlegt jólatré gert af Jane Shouten í All the Luck in the World. Ég vildi óska mér að ég hefði lausan vegg ... og nægan tíma til að dunda mér.

13.12.08

It really ties the room together

Ég keypti þessa voða sætu mottu í gær í Saltfélaginu á svakalegum afslætti. Hún átti held ég að kosta 35.000 eða meira en var komin niður í 5900 kr. Mottan heitir Birdie, er frá Donnu Wilson og fæst í tveimur grænum litum og líka brún. Ég er ægilega ánægð með kaupin og hún fullkomnar herbergi sonarins ;)

RE-found Objects

Í netversluninni RE fæst allskonar fallegt pappírsskraut. Mér finnast t.d. þessar stóru jólakúlur algjört æði.

11.12.08

Jólatré í safnið

Þessi kókostrefjajólatré fást í Kokku á Laugaveginum og ég er að hugsa um að splæsa á mig einu stykki eða svo. Ætlaði alltaf að gera það í fyrra en lét ekki verða að því, þannig að nú er tækifærið - skelli mér á eitt stórt ljósgrænt. Ég er viss um að það mun fara vel um það í eldhúsglugganum ásamt nokkrum kertum.

10.12.08

Innirólur fyrir alla fjölskylduna

Mér finnst ótrúlega sjarmerandi að hafa rólu inni hjá sér og það helst í stofunni, veit þó ekki hvernig það myndi virka hér á heimilinu, allavega hef ég ekki látið verða að því ennþá.

Á óskalistanum

Þetta eru þær sætustu tréstyttur sem ég hef séð. Algjörlega ómótstæðilegar! Þær eru hönnun Hans Bølling frá 1959 og eru framleiddar af Architectmade. Fást í Epal.

8.12.08

Og annað sniðugt tré af sömu vefsíðu ...

Seríutré

Þetta er voða sniðugt ef þú átt tóman vegg en lítið pláss fyrir tré. Myndina fann ég á www.dominomag.com.

3.12.08

Loft í Chicago

Þessar myndir eru teknar á heimili sænska ljósmyndarans Andreas Larsson. Ægilega huggulegt hjá honum ...

2.12.08

Ngoc Minh Ngo

Hér eru nokkrar fallegar og inspirerandi myndir ljósmyndarans Ngoc Minh Ngo.

27.11.08

Flott jóladagatal

úr Elle Decoration desember 2008 -ljósmynd Paolo Riolzi, stílisering Stefania Vasques.

25.11.08

Styttist í jólabasarinn ...

Við vinkonurnar stöndum fyrir jólabasar í Safnaðarheimili Neskirkju n.k. sunnudag frá kl.12-17. Þar verður allskonar dýrindis varningur til sölu s.s. heklaðir smekkir og húfur, sultur og svuntur, kerti og ilmolíur, prjónasjöl og pikklissar, kökur og kökuföt og meira að segja mokkaflíkur. Allt gert af miklum hagleikskonum. Ég verð m.a. með svona kökudiska sem ég er búin að vera að föndra úr gömlum diskum og kertastjökum og þessi tréjólatré sem eru voða sæt fyrir allskonar skraut. Meira síðar ...

24.11.08

Draumasvalirnar

Alveg gæti ég hugsað mér þessar svalir, þessa stóru glugga og arininn.

23.11.08

Kanadafjöll í miðri stofu

Þetta innlit er svo líflegt að ég varð að koma því að núna í drunganum. Svona veggfóður fæst t.d. hjá Washington Wall.

Jólakúlur

Þetta finnst mér dálítið fallegt. Að setja allskonar jólakúlur saman í knyppi og hengja þær svo upp í loft.

22.11.08

Luminator

Luminator heitir þessi gólflampi sem Achille Castiglioni og bróðir hans Pier Giacomo Castiglioni hönnuðu árið 1954. Ég hef verið hrifin af honum alveg frá því að ég var á Ítalíu en lét loks verða af því að fá hann lánaðan heim nú um helgina. Og ... hann virkar ekki hér inni. Ég er ótrúlega svekkt (hélt að þarna væri jólagjöfin komin), en um leið dauðfegin því þá spara ég mér þau útgjöld. En fyrir þá sem hafa aðeins meiri lofthæð en 2,50 er þetta alveg frábær lampi! Langaði semsagt bara að láta ykkur vita að það eru til 2 stk. í Epal sem eru á mjög góðum afslætti núna (kosta í kringum 35.000 kr.), þar sem Epal er hætt að selja lampa frá Flos. Einnig eru nokkrir aðrir Flos-lampar á afslætti. - En ég kaupi mér hann kannski seinna, þegar ég er flutt í loftið mitt - ætli það verði ekki um sextugt!