Sýnir færslur með efnisorðinu ljós og lampar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu ljós og lampar. Sýna allar færslur
20.11.11
29.9.11
17.9.11
Vintage ljós til sölu !
Til sölu þessi frábæru sixtís-loftljós, verð frá 9000 kr. - nánari upplýsingar hjá Normu á facebook ("líkið" endilega við síðuna) eða í síma 699-8577 (Inga)






16.9.11
6.9.11
Gulur vegglampi til sölu - S E L D U R
27.8.11
Calabash
Ég er svolítið hrifin af þessum ljósum og þá sérstaklega þessum gulllituðu. Hönnun Komplot og framleiðandi Lightyears.


25.8.11
Borðstofuljós til sölu - S E L T
Til sölu koparlitað borðstofuljós (49 cm í þvermál). Ljósið er komið til ára sinna, með smá rispum, en gríðarlega fallegt í laginu. Veit ekki hvar það er framleitt en er sennilega frá árunum 1960-1970 (minnir mig á Tom Dixon ljósin).

22.7.11
Svarta Semi-ljósið - S E L T
er hér enn ef einhver hefur áhuga ;)
Efnisorð:
klassísk hönnun,
ljós og lampar,
selt
1.6.11
Secto design
Ljósið í stofunni í póstinum hér á undan heitir Octo og er frá Secto-design. Hannað af Seppo Koho - fæst í Módern.
30.5.11
26.5.11
Semi-loftljós - S E L T
Til sölu gamalt svart Semi-loftljós (60 cm, stærsta tegundin) sem ég hef áður fjallað um hér. Hönnun Claus Bonderup og Torsten Thorup frá árinu 1967, framleiðandi Fog & Mörup. Nokkrar síður með myndum og upplýsingum hér, hér, hér og hér.
Tilboð óskast, olofjakobina@gmail.com
Efnisorð:
klassísk hönnun,
ljós og lampar,
selt
5.4.11
23.2.11
Luxo og frændur þeirra
Ég fann um daginn í Góða hirðinum tvo gula "Luxolampa" (sem eru þó ekki frá Luxo) og ég er svo yfir mig ánægð með þá að mig langar að þakka þeim sem létu þá af hendi. Mér finnst ég vera komin með tvo gamla æskuvini inn á heimilið.


Efnisorð:
heima,
klassísk hönnun,
ljós og lampar
13.1.11
Óska eftir skermi á Panthella-gólflampa
Lumar einhver á gömlum Panthella-skermi niðri í geymslu? Mig vantar einn slíkan - má alveg vera smá sjúskaður.
Efnisorð:
kaup og sala,
klassísk hönnun,
ljós og lampar,
ó
29.11.10
22.11.10
Eldhúsljós
Sweet Paul er mikill snillingur. Þetta fína ljós gerði hann úr gömlum iðnaðarhrærivélaþeytara og svona fór hann að því.
17.11.10
15.11.10
Bumling-loftljós
Sænsku Bumling-ljósin eru mjög vinsæl í Svíþjóð og sjást víða á myndum. Þau eru hönnun Anders Pehrson frá árinu 1968. Sölusíðan Húsgögn-Retró á Facebook er með tvö slík, hvít, ljós, alveg ný, til sölu á 45.000 kr. stykkið (kosta 85.000 krónur út úr búð) eða bæði saman á 75.000 krónur. Mjög flott í eldhúsið :)


Efnisorð:
kaup og sala,
klassísk hönnun,
ljós og lampar
12.8.10
Gae Aulenti
Pipistrello er lampi eftir Gae Aulenti (1927), sem hún hannaði árið 1966. Mér finnst hann ansi fallegur og gæti vel hugsað mér hann ef ég hefði pláss - og svo er hún líka svo mikil skvísa!






Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


















