16.7.09

Dúkkuhús í Hollandi

Erika Harberts (Miko Design) útbjó þetta dásamlega dúkkuhús fyrir dætur sínar. Ég rakst á það á síðunni Ninainvorm en einnig eru fleiri myndir hér.

Moomah

er áhugavert kaffihús í Tribeca í New York. Sjá nánar hér.

15.7.09

Smámunahilla

Hvernig finnst ykkur sú hugmynd að fara að framleiða hvítar hillur með litlum hólfum undir smádót - svona eins og margar okkar áttu þegar þær voru litlar? Væri það eitthvað sem myndi seljast? Comment vel þegin ;)

Daniel Hertzell

tók þessar myndir fyrir Elle Interiör. Meira hér.

14.7.09

Til sölu dásamlegur hægindastóll - S E L D U R

Nú langar mig að losa mig við þennan fína svarta leðurstól því hann tekur einfaldlega of mikið pláss, þó sætur sé. Þetta er einn flottasti "lazyboy" (það er skemill sem kemur upp þegar þú hallar þér aftur!) norðan alpafjalla, þó sjúskaður sé ;) Vill einhver bjóða í gripinn?

Vel nýtt svefnherbergi

Hér er dæmi um svefnherbergi þar sem nýta þarf hvern rúmsentimetra ...

13.7.09

Uniform Studio

Þessar fallegu myndir fann ég á flickr en eigandinn, húsmóðirin á heimilinu, rekur fyrirtækið Uniform-Studio.

9.7.09

Deskhouse

heitir þessi sniðuga mubla. Sjá nánar hér.

8.7.09

Og meira um Hotel du Nord

Þessa umfjöllun um hótelið fann ég svo á síðu BoligLiv.

Hotel du Nord

er lítið fallegt hótel á Borgundarhólmi sem væri gaman að heimsækja í hagstæðara gengi ...

7.7.09