Ég fæ aldrei nóg af bókstöfum sem stillt er upp hér og þar.
Danski ljósmyndarinn Pernille Enoch tók þessar myndir og því geri ég ráð fyrir að innlitið sé danskt.
Hér eru jólapakkar frá því í fyrra sem ég pakkaði inn fyrir Hús og híbýli. Ég var ægilega ánægð með snjókornið sem við mæðgurnar perluðum og gamli ísbjörninn minn kom líka vel út.