9.12.10

Norskur fjallakofi

Það væri nú huggulegt að eyða einni helgi í norskum fjallakofa. Fleiri myndir hjá Sköna hem.

8.12.10

Jólaborð Kristínar Sigfríðar

Listamaðurinn Kristín Sigfríður Garðarsdóttir lagði á jólaborðið fyrir jólablað Gestgjafans - ljósmyndari var Kristinn Magnússon ...og það eru fleiri myndir í blaðinu.

Einfaldir jólaóróar

Við Sirrý föndruðum þessar krúttlegu jólalengjur fyrir jólablað Gestgjafans. Þetta er afar einfalt; klippið út úr stífum pappír hjörtu, hringi eða önnur form. Skellið því í saumavélina, saumið með ljósbláum tvinna (eða rauðum?) og hafið smá bil á milli. Ljósmyndari Rakel Ósk Sigurðardóttir.

Holmegaard

Holmegaard Resource er síða sem lofar góðu (... er enn í þróun), en þar má finna upplýsingar um gamla glermuni framleidda af Holmegaard. Ef þú lumar á Holmegaard-vasa inni í skáp ættirðu þannig að geta fundið allar upplýsingar um hann s.s. eftir hvern er hann, hvenær var vasinn hannaður, á hvaða tímabili var hann í framleiðslu og hvernig voru merkingar fyrirtækisins.

7.12.10

6.12.10

Pakkadagatal

Rautt og hvítt dagatal af síðunni Liebesbotschaft.

4.12.10

Aðventukrans

Kjersti Tønsberg

er norsk stelpa sem heldur úti bloggsíðunni Kjertis lykke. "Aðventukransinn" hennar er afar einfaldur og því upplagt að fá hugmyndina lánaða, til að redda sér fyrir morgundaginn (myndir frá emmas designblogg).

3.12.10

Heidi Lerkenfeldt

er danskur ljósmyndari sem býr rétt fyrir utan Kaupmannahöfn. Myndir frá Design Interiör í gegnum emmas designblogg.

2.12.10

Granit

Einfalt og fallegt jólaskraut frá Granit Stokkhólmi.

Gamlársdagur

Litirnir í síðasta pósti minna mig á þessa mynd sem ég tók í fyrra á gamlársdag niðri á Ægisíðu. Brennan tilbúin og 2009 senn á enda.

Gylltir tónar og grátt

Dásamlegir litir í þessum myndum sem koma frá Walther & Co.

Kökuhús

Hef aldrei verið góð í piparkökuhúsagerð, en það er sjens að maður nái sér á strik með svona tvívíð hús. Uppskrift og meira hér.

Victoria Ladefoged

er eigandi fyrirtækisins re:Something. Þessi skemmtilegu dýr eru hennar hönnun og partur af Crafts Collection 14.

1.12.10

Selvogsgrunn 10

Vá, hvað þetta hús myndi fara mér og minni fjölskyldu vel - nóg af tekki, arinn og meira að segja hreindýrið uppi á vegg. Alveg einstakt hús, hannað árið 1960 af Jóhanni Eyfells. Fleiri myndir og nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni Kjöreign.