Ég og vinkona mín Guðný Þórarinsdóttir höfum frá því í haust haldið úti markaði á Facebook sem ber heitið NORMA (og því hefur lítill tími gefist í blogg).
Endilega kíkið á þá síðu (og líkið við) ef þið eruð ekki nú þegar vinir NORMU :)
Ég er alltaf hrifin af þessum gúmmíkörfum sem gerðar eru úr gömlum bíldekkjum. Vinsælt er að mynda þær við arininn fullar af viðarkubbum en ekki örvænta, þær má nota t.d. undir pottablóm, leikföng, prjónadótið, dagblöðin, húfur og trefla.
Sjáið þessu fallegu glös! Þau voru einu sinni vínflöskur. Kíkið endilega á síðuna Bottlehood en þar má sjá allskonar glös, misfalleg að vísu, unnin úr gömlum flöskum.
Skókassa og aðra litla pappakassa sem koma inn á heimilið má nýta aftur sem gjafakassa eða geymslubox. Hér er búið að líma utan um þá götu- og landakort, sem má t.d. finna í gömlum símaskrám eða landabréfabókum, en þær má fá í Góða hirðinum eða á öðrum mörkuðum. Mynd frá Design*Sponge.
Í Snúðum og snældum, Smáralind, fann ég þessa dásamlegu páskaunga sem ég hef áður minnst á hér. Viskustykkin frá Mibo, Madeleine Rogers, eru líka mjög skemmtileg, því það má sauma úr þeim bangsa, ref eða ljón!