12.5.09
When Objects Work
Þessar fallegu skálar eru eftir Vincent Van Duysen og framleiddar af When Objects Work. Þær fengust í Saltfélaginu á sínum tíma og kostuðu heilan helling ... en eru mjög fallegar.
2.5.09
Laugardagsverkin
1.5.09
30.4.09
28.4.09
Kivi-kertastjakarnir
frá Iittala eru alltaf jafn fallegir. Í dag fékk ég einn í sumargjöf, blueberry blue, sem bætist við safnið. Ég væri svo til í að eiga alla litina ... en það er eintóm græðgi!
27.4.09
Fjölskyldumyndirnar
Þetta er nú aldeilis fínn myndafleki, skemmtilegustu fjölskyldumyndirnar allar á einum stað ... og lampinn er líka fínn. (Stílisti Pernille Vest)
26.4.09
21.4.09
Áfram Habitat
Þessa hressilegu mottu (sem er 170x240 cm) hannaði Margo Selby fyrir Habitat. Ég væri þakklát þeim sem opnuðu verslunina aftur ... þó ekki í Holtagarðahryllingnum.
15.4.09
Butterfly chair (BKF)
var hannaður í Argentínu árið 1938. Hönnuðir stólsins eru Antonio Bonet, Juan Kurchan og Jorge Ferrari Hardoy og framleiddi Knoll hann á sínum tíma.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)










































