Ég er mjög hrifin af þessum stjörnuspegli á efstu myndinni (en hef minni áhuga á bleika typpa-blómavasanum). Myndir frá stílistanum Camillu Krishnaswamy fyrir Sköna hem.
er jólalína frá glerframleiðandanum Leonardo. Ég keypti mér svona stjörnu um daginn og er óskaplega ánægð með hana. Næstum eins og Andrea Brugi og kostaði bara 550 kr. Fást í Duka og Kokku.
Eins og sést á myndunum í síðasta pósti, þá notaði ég andarungana mína sem skraut á jólaborðið. Þeir eru, eins og áður hefur komið fram, hönnun Hans Bölling frá 1959. Söguna um andafjölskylduna má lesa hér. Endurnar fást í Epal.