22.8.12

Grænmetismauk

Í nýjasta tölublaði Gestgjafans, uppskerublaðinu, má finna allskonar uppskriftir af maukuðu grænmeti.
Þessar fallegu myndir tók Kristinn Magnússon, Úlfar Finnbjörnsson sá um matinn og ég um stíliseringu.














1.8.12

Ericofon til sölu hjá Normu

Á facebook-síðunni NORMA má bjóða í þennan ljómandi fína Ericofon - hér má svo finna ýmsan fróðleik um þessa frábæru síma.



20.5.12

Jonas Ingerstedt ljósmyndari

Hér höfum mjög svo huggulegt heimili ljósmyndarans
Jonas Ingerstedt.





27.4.12

Tekk-hillur til sölu - SELDAR

Þessar fallegu tekk-hillur eru til sölu vegna flutninga.
Hillukerfið heitir PIRA og er hannað af Olof "Olle" Pira & Nils Strinning árið 1956.
Þetta eru 6 uppistöður, 2 m háar, sem eru festar í vegg að ofanverðu. Hillurnar eru 90 cm hvert stykki og því heildarlengd 453 cm.
19 stk. 20 cm djúpar og 7 stk. 30 cm djúpar.
Allt mjög vel með farið - einstakt tækifæri!

Sjá líka á NORMU.




 

23.4.12

Euro pallettur

Þetta er nú alveg ágætis borð ... og hér má sjá aðrar 57 hugmyndir, hvernig nýta má pallettur á skemmtilegan máta.

16.4.12

NORMA - aldrei meira úrval!

Ég og vinkona mín Guðný Þórarinsdóttir höfum frá því í haust haldið úti markaði á Facebook sem ber heitið NORMA (og því hefur lítill tími gefist í blogg). Endilega kíkið á þá síðu (og líkið við) ef þið eruð ekki nú þegar vinir NORMU :)

6.4.12

6. grænn apríl

Hér er önnur hugmynd með glerkrukkum. Þær má til dæmis nýta sem morgunverðarskálar eða jafnvel undir hátíðareftirréttinn. Mynd The little red house.