Í tilefni af 75 ára afmæli Artek voru nokkrir frægir hönnuðir fengnir til að gera sína eigin útgáfu af þekktum stólum fyrirtækisins. Ilse Crawford ríður á vaðið með þessa útgáfu af hægindastólnum-400.
Nú hefur vefverslunin Uma hafið sölu á færeysku kveðjunni "Guð signi heimið" (drottinn blessi heimilið). Endilega látið það berast til þeirra Færeyinga sem þið þekkið :)
... en ég get nú ekki orða bundist, því þetta er með því grófara sem ég hef séð. Fyrir tilviljun datt ég inn á síðu sem heitir Skapi Íslensk Hönnun og þar má sjá þetta tré sem er semsagt fatastandur. Það þarf varla að taka fram að árið 2003 hönnuðu Katrin Ólína Pétursdóttir og Michael Young fatastandinn Tree sem vakti mikla athygli og gerir enn. Varist eftirlíkingar !
Efni Amy Butler eru mörg hver mjög falleg og lífga svo sannarlega upp á skammdegið, en þau fást hér á landi í Storkinum, Kjörgarði. Kíkið endilega á gluggaútstillinguna ef þið eigið leið þar hjá :)
Ansi hreint skemmtilegur litur á þessum eldhússtólum og svo væri ég alveg til í að hlamma mér í þennan hornsófa - innlit af síðunni My Scandinavian Retreat.