22.8.10

Sumarhús á Sjálandi

Frábært sumarhús teiknað af Primus-arkitektum.

Kryddhilla undir hitt og þetta

Bekväm-kryddhillan frá IKEA er sennilega hillan sem ég hef beðið eftir (var bara svo lengi að uppgötva hana). Eflaust fín undir bækur í barnaherbergjum. Myndir af sænsku síðunni Malo blogg.

Heimatilbúnar blómalengjur

Á síðunni Once Wed má læra að búa til falleg blóm úr kreppappír.

20.8.10

The Selby - Connecticut

The Selby myndaði hjá Glenn O´Brien og Gina Nanni í Connecticut.

18.8.10

Múminbollarnir

Þetta er nú skemmtileg síða fyrir múmínbollaeigendur.

17.8.10

Toro

Þessir fínu búkkar eru hönnun Felix Klingmüller.

14.8.10

Marianne Westman

Skreytingar Marianne Westman á sænsku postulíni finnast mér voða skemmtilegar. Hún hóf störf hjá Rörstrand árið 1950 og starfaði þar í fjöldamörg ár. Nú hefur Picknick-lína hennar (frá 1956) verið sett aftur í framleiðslu hjá Almedahls og má nálgast hana hér. Þess má geta að hún hannaði Annika-kaffistellið (á neðstu myndinni) sem ég ólst upp með en það var í framleiðslu frá 1972-1981.

12.8.10

Jákvæð skilaboð á vegginn

Gae Aulenti

Pipistrello er lampi eftir Gae Aulenti (1927), sem hún hannaði árið 1966. Mér finnst hann ansi fallegur og gæti vel hugsað mér hann ef ég hefði pláss - og svo er hún líka svo mikil skvísa!