15.11.11

Hverra mamma ert þú?

heitir þetta fallega ljóðabókverk sem kemur út n.k. föstudag, 18. nóvember í Spark Design Space. "Verkið, sem gefið verður út í tölusettum eintökum, varð til í höndum þróunarfræðings, arkitekts og myndlistarkonu sem vildu heiðra mæður sínar, ömmur, langömmur og lífið sjálft í þrívíðum ljóðheimi sem ratað hefur á rótina sína". Ljóðheimur: orð Hrund Gunnsteinsdóttir, teikn Soffía Guðrún Kr Jóhannsdóttir og rúm Hildigunnur Sverrisdóttir. Allar nánari upplýsingar um verkið hér.

13.11.11

Mats Gustafson

Sænski listamaðurinn Mats Gustafson býr í þessari huggulegu íbúð í Stokkhólmi. Og ég er svolítið hrifin af álftinni í stofuglugganum ;)
Ljósmyndari Magnus Mårding og stílisti Jacob Hertzell fyrir NYTimes-magazine (via Lotta Agaton).

12.11.11

Aðventukransar 2011

Rétt eins og í fyrra gerði ég nokkra aðventukransa fyrir Gestgjafann og Rakel Ósk Sigurðardóttir myndaði.

11.11.11

Kökublað Gestgjafans komið út

Og þar má meðal annars finna þetta fallega teboð. Sigríður Björk Bragadóttir, Sirrý, sá um bakstur og uppskriftir, ljósmyndari var Karl Petersson og stílisering var í mínum höndum.

4.11.11

Handverk og hönnun í Ráðhúsinu

Þá eru tveir dagar búnir af Ráðhúsmarkaðnum og helgin framundan! Hér eru sýnishorn af því sem ég er með til sölu þar :)

3.11.11

Ráðhúsmarkaður 3.- 7. nóvember

Hlakka til að sjá ykkur í Ráðhúsinu, Postulína verður á staðnum - allar upplýsingar hjá Handverki og hönnun - hér.

1.11.11

Ódýrir eggjaréttir

Ég væri meira en til í góða eggjaköku núna. Myndir úr 14. tbl. Gestgjafans, myndir Kristinn, matur Sirrý og ég sá um stíliseringu.

30.10.11

Óska eftir Cherry Blossom - seríu

Mig langar enn óskaplega mikið í svona kirsuberjaseríu eins og fékkst í Habitat á sínum tíma, CHERRY BLOSSOM eftir Tsé & Tsé.
Endilega hafið samband ef þið lumið á einni slíkri inni í skáp! olofjakobina@gmail.com

26.10.11

Hvit jól - Hönnunarsafni Íslands

Jólasýning Hönnunarsafns Íslands ber nafnið Hvít jól. Ég er sýningarstjóri á þeirri sýningu og er búin að vera að raða og raða alla vikuna, ótrúlega skemmtilegt! Langar því til að mæla með ferð í Garðabæinn, því ég veit að það eru margir sem hafa ekki enn komið í Hönnunarsafnið á Garðatorgi.

23.10.11

20.10.11

Ýmislegt til sölu hjá Normu

Norma er Facebook-verslun sem við vinkonurnar erum með - endilega líkið við hana :)

19.10.11

The Bow Bins

Cordula Kehrer hannar þessar stórgóðu ruslafötur - meira hér.