12.3.09

Skýjapúðar

Þetta eru nú meiri krúttin, þessir púðar Donnu Wilson.

10.3.09

Hús Arne Jacobsen 1:16

Eitt flottasta dúkkuhús sem ég hef séð er hér, en það er endurgerð á húsi Arne Jacobsens í Gotfred Rodes Vej 2 i Charlottenlund. Ég vona þó að einhverjar dúkkur passi í húsið svo að ein verði ekki að leika Svaninn og hinar Eggið og Sjöuna. Framleiðandi er Minimii.

9.3.09

Herbergi Ellu 5 ára

Hún Ella býr í Stokkhólmi og á þetta fína 15 fm herbergi. Meira um það (25 idéer i Ellas rum) á síðu Hus & Hem.

Litagleði í Kaupmannahöfn

Þetta litríka heimili er í Kaupmannahöfn, en eigandinn Lea rekur verslunina Butik NØ. Ljósmyndir: Lars Ranek.

8.3.09

Fjölskyldan á heimavelli

The Family at Home er bók eftir Anitu Kaushal. Ég hef ekki séð hana sjálf, en myndirnar lofa góðu ...

7.3.09

Ullarfótboltar

Þessir skemmtilegu fótboltar eru verk Klas Ernflo en þeir eru gerðir úr mismunandi ullarefnum og eru allir á stærð við venjulegan fótbolta. Hefði t.d. verið fín afmælisgjöf handa Tómasi 2 ára!

5.3.09

Villa Augustus Dordrecht

Hótel og veitingastaðurinn Villa Augustus í Dordrecht í Hollandi virðist vera afar spennandi staður.

Sköna hem í Stokkhólmi

Sköna hem er oft með mjög skemmtileg innlit eins og t.d. þetta hér sem er í Stokkhólmi.

4.3.09

Hvítt og bjart

Þetta lítur einstaklega vel út. Tilhugsunin um að vera með þennan stóra glugga, fá alla þessa birtu inn, en um leið hirslur eftir endilöngum stofuveggnum - algjör draumur ... Hönnun: Fernlund + Logan og meira af þeim hér og hér.

Listaverk barnanna

Þetta er ansi huggulegt eldhús. Hátt til lofts og vítt til veggja og listaverkum barnanna gert hátt undir höfði (gardínuvírar úr IKEA). Ljósmyndari: Daniel Farmer.

Heima hjá eiganda Klassik

Í Bo bedre birtist innlit hjá eiganda verslunarinnar Klassik, Thomas Schlosser. Drengurinn á óskaplega fallegt innbú (eins og búast mátti við) en það er ekki beint heimilislegt hjá honum Tómasi.