18.4.11

Pantone-könnur í Epal

Pantone-könnurnar eru nú fáanlegar í Epal en ég hef góða reynslu af þeim - gæti t.d. alveg hugsað mér eina gula (áður hér).

14.4.11

Franskar makrónur

Þessar dásamlegu makrónur hristi Sirrý fram úr erminni. Kristinn tók myndirnar og ég stíliseraði. Nýr Gestgjafi í næstu búð.

13.4.11

Bláskel úr Hrísey

Við gerðum dýrlegan bláskelsþátt um daginn og allt smakkaðist undurvel. Ljósmyndari var Kristinn Magnússon, um matseld og uppskriftir sá Sirrý og stílisering var í mínum höndum. Meira í nýja Gestgjafanum sem kemur í búðir á morgun.

12.4.11

ATH-hillur ... tvær til á lager

Nú er ATH-hillurnar komnar heim af HönnunarMarsinum og ég er hér með tvær sem ég er tilbúin til að selja. Þær eru jafnstórar (eins og þessi sem fíllinn stendur á) 30 cm á lengd, 8.5 cm á dýpt og 4.5 cm á hæð. Þær lífga svo sannarlega uppá umhverfi sitt :) 5000 kr. stykkið - olofjakobina@gmail.com

11.4.11

String-hillukerfi

String-hillukerfið er hönnun sænska arkitektsins Nils Strinning frá 1949. Hillurnar eru gott dæmi um klassíska skandinavíska hönnun frá miðri síðustu öld - fást í Epal.

Sirio-stjörnuskál

Í dag fann ég eina Sirio-stjörnuskál frá Kähler í Góða hirðinum og borgaði fyrir hana heilar 150 krónur. Góði alltaf góður!

8.4.11

Dagatalið á markaðnum á morgun

Á Flóamarkaðnum á Eiðistorgi á morgun verður m.a. hægt að kaupa dagatalið Tímamót á góðum afslætti ;)

5.4.11

Semi

Semi heitir þetta fallega loftjós sem Claus Bonderup og Torsten Thorup hönnuðu árið 1967. Í fyrra hóf danska fyrirtækið Gubi aftur framleiðslu á ljósunum og eru þau nú fáanleg í þremur stærðum.

4.4.11

Ovale í Epal

Ég minntist á Ovale-borðbúnaðinn eftir Bouroullec-bræðurna fyrir nokkrum mánuðum síðan. Nú er hann kominn í sölu í Epal og er alveg jafn fallegur og á myndunum - tilvalinn í brúðargjafir.

31.3.11

Frumskógarafmæli

úr nýjasta Gestgjafanum, myndir Karl Petersson.

30.3.11

Fallegt fuglahús

Lenneke Wispelwey er hönnuður þessa fallega fuglahúss.

28.3.11

Hönnunarmars 2011

Á síðunni Koolandkreativ má sjá heilmikið um Hönnunarmarsinn - hef engu við það að bæta ;)

21.3.11

Lísa

Guðbjörg Káradóttir leirkerasmiður og ég höfum hafið samstarf undir heitinu Postulína. Lísa er fyrsta afurð Postulínu, staflanlegir kertastjakar handrenndir úr postulíni. Kertastjakarnir verða kynntir í Epal á HönnunarMars sem hefst núna á fimmtudaginn.

17.3.11

Eldhús á Flókagötu

Karl Petersson myndaði þetta fallega eldhús fyrir Gestgjafann. Innlitið birtist í 13. tbl. 2010.