18.10.08

Gult - bland í poka

Nagel kertastjakar

Nagel kertastjakarnir voru mjög vinsælir hér á árum áður. Þeir voru framleiddir í Þýskalandi og komu á markað 1968-69. Mamma mín átti þrjá stjaka og eina skál en svo hef ég fundið svona einn og einn til að bæta við safnið - þess má geta að ég sit voða stillt og prúð við hlið stjakanna á fyrstu jólakortamyndinni frá 1969. Ég mun áfram hafa augun opin, því ég væri alveg til í nokkra í viðbót ... en ég stefni samt ekki á 218 stykki eins og neðri myndirnar sýna. Það væri græðgi!

17.10.08

Barnaveggfóður og límmiðar

Ferm LIVING er danskt fyrirtæki sem framleiðir m.a. límmiða á veggi og veggfóður. Nú í haust komu þeir með nýja barnalínu sem mér líst afar vel á. Sirka á Akureyri selur þessar vörur eins og svo margt annað skemmtilegt.

16.10.08

Meira af Fernlund + Logan

Myndir af þessari íbúð eru m.a. í bók sem ég keypti fyrir mörgum árum. Enn í dag finnst mér þetta jafn geggjað og þá, en íbúðin er hönnuð af Fernlund + Logan árið 1996.

15.10.08

Heima hjá Solveigu Fernlund og Neil Logan

Verk arkitektanna Fernlund + Logan hafa birtst víða - bæði í bókum og blöðum, en einnig hér á netinu. Ég er mjög hrifin af því sem þau eru að gera og ekki síður hrifin af þeirra eigin heimili, sem er hér fyrir neðan. Bara nákvæmlega eins og ég myndi hafa það ef ég byggi í New York : )

14.10.08

Flowerpottar á borð

Og svo eru líka til Flowerpot borðlampar. Voða sætir.

13.10.08

Flowerpot Verners Panton

Nýjasta æði frúarinnar eru Flowerpot-lamparnir en þeir eru nú loksins fáanlegir hér á landi (- í Epal og kosta bara 28.800 - allt undir 30.000 telst nú bara ódýrt!). Þeir fást í allskonar fallegum litum og hef ég þá trú að þeir muni lífga upp á heimilið svo um munar. Síðan telst þetta bara nokkuð góð fjárfesting, því að svona gamlir lampar ganga kaupum og sölum á hinum ýmsu netverslunum. Erfiðast er að velja litinn því mig langar í gulan eða turkisbláan en svartur er nefnilega líka fínn ...

12.10.08

Design by us

Úr því að ég er farin að minnast á gamalt gler þá verða þessir lampar að fá að fylgja með. Design by us er framleiðandinn en þeir eru einnig gerðir úr gömlum mismunandi glerkúplum.

11.10.08

Endurvinnsla

Stuart Haygarth er breskur hönnuður sem á heiðurinn af þessari fínu aflöngu ljósakrónu. Hún ber heitið Shadey Family og er gerð úr gömlum notuðum glerkúplum. Þetta er nú eitthvað fyrir mig, því ég kem ansi oft við í Góða hirðinum og stoppa þá alltaf við hilluna með glerkúplunum, hef þó enn látið þá vera. En það eru fleiri en ég og þessi ágæti Stuart sem heillast af svona gömlu gleri því neðri myndirnar tvær eru teknar af síðu Kathleen Hills, sem er einnig breskur hönnuður og með svipaðar hugmyndir.

10.10.08

Bara svona til að dreifa huganum ...

... þá fann ég þetta fína heimili á Flickr. Ég er sérstaklega ánægð með gamla skenkinn sem er notaður undir sjónvarpið. Fleiri myndir hér.

6.10.08

Guð blessi Ísland

Í tilefni dagsins ... þessi fínu plaköt, sem voru upphaflega gerð í seinni heimsstyrjöldinni, má kaupa bæði á síðu Keep Calm and Carry On og á Etsy í sfgirlbybay's Shop.

5.10.08

Danskt draumaheimili

10 unikke, danske drömmehjem má finna í nýjasta BO BEDRE. Hér er eitt þeirra, svona líka fínt. Og fleiri myndir hér.

3.10.08

Bleikir Maurar

Talandi um bleikan október þá varð ég að sýna ykkur þessa dásamlegu bleiku Maura. Alveg ótrúlega flottir. Sammála?

1.10.08

Bleikur október

Októbermánuður er helgaður baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Mig langaði að leggja eitthvað af mörkum og lét því framleiða bleika snaga sem eru hugsaðir sem fjáröflun. Hönnunin er mín en handverksmaðurinn Úlfar Sveinbjörnsson renndi þá fyrir mig úr beyki. Kristján Heiðberg hjá Glugga- og hurðasmiðju Selfoss sá síðan um að sprauta snagana bleika. Mig langar að þakka þeim innilega fyrir þeirra framlag. Snaginn, sem heitir Bína, mun kosta 2500 kr. og vera fáanlegur í Epal, Skeifunni 6 og Leifsstöð en einnig í Sirku á Akureyri, mínum heimabæ! (en einnig má hafa samband beint við mig). Allur ágóði af sölu mun renna til Krabbameins-félagsins. Styrkið gott málefni og eignist fallegan hlut í leiðinni.