9.6.11
8.6.11
3.6.11
Flóamarkaður á morgun, laugardag 4. júní
Á morgun verður haldinn flóamarkaður á Eiðistorgi frá kl.11-17. Ég er búin að taka til allskyns dót sem ég ætla að selja s.s. pels, vintage kjóla, refaskinn, hringa, tekkskál, 4 gömul græn glös (eins og þessi rauðu á myndinni), seventís loftljós, nokkrar hönnunarbækur, pezkalla og ótalmargt fleira :) Svo verð ég líka með dagatalið Tímamót á þúsundkall! það eru nú alveg 7 mánuðir eftir af árinu, aldrei of seint að skipuleggja sig.
2.6.11
Til sölu vintage leðursófi - S E L D U R
Er alveg að missa mig í vortiltektinni og hef nú ákveðið að selja svarta leðursófann minn. Hann er alveg óskaplega fallegur en um leið og ég færði hann út úr stofunni þá græddi ég nokkra auka fermetra. Semsagt, til sölu ef gott tilboð fæst í gripinn (verðhugmynd 40-50.000 kr.). Lengd 245 cm, dýpt 80 cm og hæð 70 cm.
Óska eftir tilboðum á netfangið olofjakobina@gmail.com
1.6.11
Secto design
Ljósið í stofunni í póstinum hér á undan heitir Octo og er frá Secto-design. Hannað af Seppo Koho - fæst í Módern.
31.5.11
30.5.11
28.5.11
Urban Deli Nytorget
Urban Deli í Stokkhólmi er frábær staður sem vert er að skoða, alveg einstök matvöruverslun + veitingastaður í sama húsi.












Barnaherbergi fyrir 2
Sniðug lausn á barnaherbergi (ef hátt er til lofts) - meira um heimilið hér.
Ljósmynd William Abranowicz fyrir Elle Decor.
26.5.11
Semi-loftljós - S E L T
Til sölu gamalt svart Semi-loftljós (60 cm, stærsta tegundin) sem ég hef áður fjallað um hér. Hönnun Claus Bonderup og Torsten Thorup frá árinu 1967, framleiðandi Fog & Mörup. Nokkrar síður með myndum og upplýsingum hér, hér, hér og hér.
Tilboð óskast, olofjakobina@gmail.com
Efnisorð:
klassísk hönnun,
ljós og lampar,
selt
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)







































