9.9.08
Fimmtíu ára afmæli PH 5
Það er ekki nóg með að Eggið og Svanurinn séu orðin fimmtíu ára heldur er PH 5 lampinn það líka. Og í tilefni af því kynnti Louis Poulsen nýverið fimm nýja liti af lömpunum: hvítan, svartan, rauðan, ljósgrænan og ljósbláan, alla háglans lakkaða. Mér líst voða vel á þann svarta ... en mun láta mér nægja minn gamla rauða sem er löngu hættur í framleiðslu.
8.9.08
Acapulco-stóllinn
Acapulco-stóllinn, sem framleiddur er af Oficina Kreativa, er endurgerð af mexíkönskum stól sem kom á markað á sjötta áratug síðustu aldar. Oficina Kreativa er danskt fyrirtæki með aðsetur bæði í Kaupmannahöfn og Mexíkó. Stóllinn kom á markað í vor og hefur verið í sölu í sumar í helstu hönnunarverslunum Kaupmannahafnar s.s. Illums Bolighus, Normann Copenhagen og Casa Shop. Þetta virkar afar skemmtilegur stóll og ekki svo dýr, 1880 dkk. 

7.9.08
Sommar-rúmteppi
Í dag fór ég í IKEA og fann þetta dýrindis rúmteppi á útsölu á 1990 kr. Það er ótrúlega fallegt og ég er alsæl með kaupin. Stærðin á því er 150x250 cm, þannig að það nær yfir helminginn af rúminu. Svo mætti kaupa annað til, sauma þau saman og fá þá draumateppið yfir hjónarúmið á 3980 kr.
Innskotsborð frá 1927
Talandi um innskotsborð þá eru hér dýrleg borð sem geta lífgað upp á stofur landsmanna. Þau eru hönnuð árið 1927 af Josef Albers og framleidd í dag af Vitra.
5.9.08
Tablo bakkaborð
Sænska fyrirtækið Design House Stockholm framleiðir marga skemmtilega hluti. Þar á meðal er bakkaborðið Tablo sem má nota bæði úti og inni, sem hliðarborð, ávaxtaskál eða jafnvel fuglabað. Ég er mjög hrifin af svona fjölnota hlutum og hef dáðst af þessu borði í nokkur ár. Kisan selur vörur Design House Stockholm á Íslandi.


4.9.08
Svanurinn 50 ára
Það eru komin 50 ár síðan að Arne Jacobsen hannaði Eggið og Svaninn fyrir SAS Royal-hótelið í Kaupmannahöfn. Frá því í vor hefur áherslan verið á afmæli Eggsins og sérstök Afmælisegg voru í sölu af því tilefni. Í haust verður svo tími Svansins, sem er ekki síður fallegur stóll. Fritz Hansen-menn og konur ákváðu að framleiða 1958 stk. af hvítum leðursvönum (sem eiga að minna á alvöru svani) og ég efast ekki um að Epal hafi tryggt sér nokkur stykki. Hafið því augun opin.
En þeir hjá Fritz Hansen fengu aðra hugmynd (töluvert síðri að mínu áliti) og það er að bjóða upp á hærri útgáfu af Svaninum, hækka hann um 8 cm og koma honum þannig í flokk fundar- og borðstofustóla. Hljómar mjög furðulega.





Soho House New York
Soho House í New York er einkaklúbbur og hótel með 24 herbergjum. Studioilse sá þar um innanhússhönnun (rétt eins og á veitingastaðnum Mathias Dahlgren) og þetta er greinilega klúbbur fyrir mig. Ótrúlega sjarmerandi. 



3.9.08
Mathias Dahlgren Stokkhólmi
Veitingastaðurinn Mathias Dahlgren á Grand Hótel í Stokkhólmi var í fyrra endurhannaður af stúdíói Ilse Crawford (sem var í mörg ár ritstjóri breska Elle decoration) Studioilse. Þar hefur vel tekist til og væri spennandi að koma við í næstu Stokkhólmsferð.








Züny leðurdýr
Ég var að fletta nýjasta Bo bedre og rakst þar á þessa ægilega sætu mörgæs. Hana má nota sem bókastoð, hurðastoppara eða bara til skrauts. Framleiðandi er Züny en tímaritið bendir á heimasíðu heildsölunnar Edo í þessu samhengi, en þar má finna allskyns dót m.a. vini hennar flóðhestinn og ísbjörninn.

31.8.08
Meira um Saarinen-borðið
Það virðast fleiri hafa dálæti á þessu fallega borði því að á síðunni a-mad-tea-party-with-alis.blogspot.com fann ég m.a. þessar fínu myndir ...







Borð drauma minna
Og talandi um Eero Saarinen, þá er þetta draumaeldhúsborðið. Fallegasta borð allra tíma, hannað af Eero Saarinen árið 1956.
Saarinen stólar
Barnastólar á Ebay
Ég rakst á þessa sætu barnastóla á ebay rétt í þessu. Þeir myndu passa fullkomlega inn hjá mér en ég kem bara ekki fleiri barnastólum fyrir ... þannig að ef einhver hefur áhuga þá eru tveir dagar eftir af uppboðinu og engin boð komin.
27.8.08
300 fermetrar á 10 milljónir! - S E L T
Hvern dreymir ekki um að komast í 300 fermetra og að borga fyrir þá einungis 10 milljónir? Jú, kannski þann sem á nú þegar 300 fermetra og nóga peninga, en þannig er ekki farið með mig. Voilá! Gamli barnaskólinn í Hrísey - frábært tækifæri fyrir kjarkmikla einstaklinga og fjölskyldur.
26.8.08
DLM - Don´t leave me
DLM-borðin frá Hay eru hönnuð af Thomas Bentzen (sem hefur starfað með Louise Campbell undanfarin ár) og komu á markað í fyrra. Þessi borð eru sannkallað þarfaþing því þau má nota á víð og dreif um húsið s.s. undir lykla og smádót í forstofunni, sem hliðarborð við sófa, út á svölum, sem náttborð, undir drykk við baðið og svo er hægt að ferðast með þau bæði innan dyra og utan. Þau koma í sjö litum en gula er mitt uppáhald!
25.8.08
Muuto
Muuto er danskt fyrirtæki sem framleiðir allskonar skemmtilega hluti eftir unga skandinavíska hönnuði s.s. Norway says, Claesson, Koivisto og Rune, Harri Koskinen og Louise Campbell. Hér eru því skandinavískir straumar dagsins í dag (og kannski líka Sjöur og PH-ljós framtíðarinnar). 



21.8.08
Blandaðir stólar
Ef þér reynist erfitt að velja réttu borðstofustólana þá er lausnin að fá sér bland í poka, kaupa bara eitt stykki af hverri sort. Þannig þarftu ekki að gera upp á milli, heldur leyfir öllum uppáhaldsstólunum þínum að vera með (myndir af síðunni: a mad tea party with alis).






Grass og Pratone
Grasvasarnir frá Normann Copenhagen eru dálítið skemmtilegir og mér skilst að vinsældir þeirra séu slíkar að þær stúlkur hjá Claydies (hönnuðir og frameiðendur) Tine Broksø og Karen Kjældgård-Larsen, anni alls ekki eftirspurn. Þessir vasar minna mig alltaf á Pratone-mubluna sem Giorgio Ceretti, Pietro Derossi og Riccardo Rosso (Gruppo Sturm) hönnuðu árið 1968. Gufram framleiðir enn þetta stykki ásamt mörgum öðrum furðumublum. 



20.8.08
Kirkjubekk í svefnherbergið
Ég er dálítið slæm með fatahrúgurnar inni í svefnherbergi og mig grunar að ég sé ekki ein um það. Á síðu Rebekah Sigfrids fann ég voða sæta mynd þar sem að heill kirkjubekkur er kominn inn í svefnherbergi og ég held að það gæti verið eitthvað sem hentaði mér ... gæti líka vel sætt mig við George Nelson-bekkinn sem Vitra framleiðir.

Efnisorð:
góð hugmynd,
húsgögn,
klassísk hönnun
IKEA-sjónvarpsbekkir
Á heimasíðu Rebekah Sigfrids innanhússarkitekts fann ég þessa mynd, þar sem tveir Bonde-sjónvarpsbekkir frá IKEA eru notaðir undir sjónvarpið. Mér finnst þetta koma ótrúlega vel út og því góð lausn á viðráðanlegu verði.


Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




